Færsluflokkur: Bloggar
Þingpönk og þjóðaratkvæðagreiðslur.
24.2.2014 | 22:25
Þetta blogg er samansafn heimilda af vef Alþingis með öllum þingsályktunartillögum sem ég fann um þjóðaratkvæðagreiðslur vegna inngöngu í /viðræðna við /aðildar að Evrópusambandinu frá hruni og fram til síðasta sumarþings (ESB).
Samtals eru þingsályktunar- og breytingartillögurnar frá þessum tíma þar sem tilraunir til að koma þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB til framkvæmda u.þ.b. 15 talsins. Ýmist hafa þær verið felldar í atkvæðagreiðslu, ekki komist á dagskrá þingsins eða dagað uppi í utanríkismálanefnd. Tillögur sem ekki komast á dagskrá þingsins eru á ábyrgð stjórnarflokka og þingforseta hvers tíma.
Efst í blogginu er fyrsta þingsályktunin er varðar þjóðaratkvæðagreiðslu. Næst á eftir kemur efni er varðar aðildarumsóknina sjálfa (þingsályktun og nefndarálit) og þar á eftir koma þingsályktunartillögur og breytingatillögur er varða þjóðaratkvæðagreiðslur frá mismunandi tímum og fleiri en einum og fleiri en tveimur flutningsmönnum.
Það er rétt að tala það fram að þetta er birt með fyrirvara þar sem gagnaöflunin var oft og tíðum flókin og fáar útskýringar fara eftir.
2008
Tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópusambandinu
79. mál þingsályktunartillaga 136. löggjafarþingi 20082009.
Flutningsmaður: Birkir J. Jónsson
Útbýtingardagur 09.07.2009.
Útbýtingardagur 10.07.2009.
nei:
greiðir ekki atkvæði:
Önnur er merkt 256.1 og er hér að ofan. Hin er merkt 256.2 og er fyrir neðan þenna texta.
Fyrir neðan þá atkvæðagreiðslu er svo nefndarálit með breytingartillögu sem ég sé ekki hvar endaði.
nei:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Flökkusaga um tiltekt innan Sjálfstæðisflokksins.
8.2.2014 | 21:29
Ekki vegna þess sem skrifað var í fréttinni heldur vegna þess sem ekki var skrifað.
Ég á mikið af vinum í Sjálfstæðisflokknum og þar sem í fréttinni er minnst á mann sem ég þekki fannst mér rétt að athuga hvort tilfinning mín, um að ef til vill væri um stærri frétt að ræða, væri rétt. Hann var og þögull sem gröfin.
Þögnin sagði mér aðeins eitt - að meira byggi að baki en fréttin gæfi til kynna.
Ég hóf að spyrjast fyrir og í stuttu máli bar heimildarmönnum mínum öllum saman um það að um aðför gegn ESB-andstæðingum innan flokksins væri ræða. Jafnvel þó um flökkusögu sé að ræða finnst mér rétt að opinbera hana. Einkum vegna þess að mér finnst um persónulegar, ómaklegar og óheiðarlegar aðfarir að ræða. Sé um valdabaráttu að ræða innan Sjálfstæðisflokksins er gott að skoða hvernig völdum er farið í lögum flokksins.
"Um landsfund7. gr.Landsfundur hefur æðsta vald í málefnum flokksins. Hann markar heildarstefnu flokksins í landsmálum og setur reglur um skipulag hans."
"8. gr.Landsfundur skal haldinn annað hvert ár. Miðstjórn boðar og undirbýr landsfund. Heimilt er að boða til lands-fundar oftar ef miðstjórn telur brýna þörf krefja."
Síðasti landsfundur var haldinn í febrúar 2013 og ætti því næsti landsfundur að vera haldinn í febrúar á næsta ári . Þó er ekki útilokað að huglægt mat miðstjórnarmanna á túlkun 8. greinar, um brýna þörf kalli á landsfund fyrir þann tíma.
Setu á landsfundi eiga ýmsir sem sinna trúnaðarstörfum fyrir flokkinn.
"9. gr. Landsfundargögn, þ.á m. drög að landsfundarályktunum skulu vera tilbúin a.m.k. mánuði fyrir landsfund. Afhendir miðstjórn kjörgögn til þeirra, sem rétt eiga til setu á landsfundi, samkvæmt skriflegri yfirlýsingu formanns viðkomandi sjálfstæðisfélags, þess efnis, að fulltrúinn sé fullgildur til þátttöku á landsfundi, sbr. 8. gr.Um val landsfundarfulltrúa gildir eftirfarandi:I. Landsfundur skal í aðalatriðum skipaður í samræmi við tölu sjálfstæðiskjósenda í kjördæmum landsins, þannig:a. Hvert kjördæmi hefur rétt til að velja þrjá fulltrúa fyrir hverja 200 kjósendur flokksins í síðustu alþingiskosningum í því kjördæmi og helmingsbrot þeirrar tölu eða meira.b. Hvert sjálfstæðisfélag (ekki fulltrúaráð) hefur rétt til að velja þrjá fulltrúa á landsfund. Þegar í sjálfstæðisfélagi eru 200 fullgildir félagsmenn samkvæmt 35. gr. hefur það rétt til að velja fjóra fulltrúa og að auki einn fyrir hverja 200 fullgilda félagsmenn umfram þá tölu eða helmingsbrot hennar eða meira. Miða skal við fjölda fullgildra félagsmanna samkvæmt félagatali aðalfundar síðasta starfsárs á undan aðalfundi.II. Kjördæmisstjórn skiptir þeim fjölda landsfundarfulltrúa, sem kjósa á eftir kjörfylgi flokksins, á milli fulltrúaráðs-umdæma eða félagssvæða, ef fulltrúaráð er ekki starfandi í umdæmi, í semnánustu samræmi við fylgi flokksins á hverjum stað. Verði ágreiningur um þessa skiptingu skal miðað við tölur fullgildra félaga í sjálfstæðisfélögum í hverju umdæmi á aðalfundi síðasta starfsárs fyrir landsfund. Vilji fulltrúaráð eða félag í umdæmi án fulltrúaráðs ekki una ákvörðun kjördæmisstjórnar, getur það krafist fundar í kjördæmisráði, sem hefur endanlegt úrskurðarvald um málið.III. Ef stjórnir allra sjálfstæðisfélaga í sama fulltrúaráðsumdæmi gera samkomulag um skiptingu landsfundarfulltrúa samkvæmt kjörfylgi sín á milli, er fulltrúaráðsstjórn heimilt að fela þeim kosningu þeirra fulltrúa, allra eða að hluta, sem kjördæmisstjórn hefur úthlutað fulltrúaráðsumdæminu. Ef samkomulag næst ekki má skjóta ágreiningi um skiptingu fulltrúanna til fulltrúaráðsstjórnar og áfram til endanlegs úrskurðar kjördæmisstjórnar. Félög í umdæmi án fulltrúaráðs geta skotið ágreiningi um skiptingu landsfundarfulltrúa til endanlegs úrskurðar stjórnar kjördæmisráðs.IV. Hvert sjálfstæðisfélag kýs þá landsfundarfulltrúa er því samkvæmt lið i. er heimilt að velja, en fulltrúaráðin velja þá landsfundarfulltrúa, sem kjósa á eftir kjörfylgi flokksins, að því marki, sem þau hafa ekki falið sjálfstæðisfélögum kosningu þeirra, sbr. Lið iii.Kosning landsfundarfulltrúa skal ávallt fara fram á almennum fulltrúaráðs- eða félagsfundum og skal kosning-anna getið í fundarboði. Kosningarrétt og kjörgengi hafa aðeins fullgildir félagsmenn.V. Skylt er félagi eða fulltrúaráði að kjósa á sama hátt og segir í lið iv. hæfilega marga varamenn landsfundarfull-trúa, sem taka sæti á landsfundi í forföllum aðalmanna þeirri röð, sem kosning þeirra segir til um. Stjórn kjördæmisráðs sker endanlega úr um fjölda varamanna fyrir hvert fulltrúaráð og/eða félag.VI. Flokksráðsmenn eiga rétt til setu á landsfundi með fulltrúaréttindum. Varamenn flokksráðsmanna samkvæmt 13. gr. 2. mgr. taka sæti á landsfundi í forföllum aðalmanna."
"Evrópa er eitt mikilvægasta markaðs- og menningarsvæði Íslands og því nauðsynlegt að tryggja áfram opinn og frjálsan aðgang að innri markaði Evrópusambandsins svo sem gert er á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Nýta ber þau margvíslegu tækifæri sem samningurinn veitir til að fylgja eftir hagsmunum Íslands gagnvart öðrum ríkjum Evrópu. Landsfundur telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið með því að standa fyrir utan Evrópusambandið. Áréttað er að aðildarviðræðum við ESB verði hætt og þær ekki teknar upp aftur nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu."
Meðal þess sem haldið var fram við mig er að lekamál Hönnu Birnu í Innanríkisráðuneytinu sé haldið við af þeim hópi sem nú fer gegn Ólafi Inga Hrólfssyni sem nefndur er í fréttinni sem ég vísaði til hér í upphafi. Athyglisvert er að skoða í því samhengi umræður á Alþingi um mál Hönnu Birnu og hvernig Hanna Birna hefur staðið nánast ein til andsvara í þeirri umræðu. Ég get ekki séð að samflokksmenn hennar hafi sýnt henni neinn stuðning ef frá er talin Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
Það þarf ekki að vafra lengi til að sjá hver afstaða Hönnu Birnu er gagnvart Evrópusambandinu. Ég veit líka fyrir víst hver afstaða Ólafs Inga er í sama máli. Hún er samhljóma afstöðu Hönnu Birnu.
Heimildarmenn mínir halda því fram að næstur "undir fallöxi" valdaklíkunnar sé maður að nafni Óttar Örn Guðlaugsson. Mér tekst ekki að finna heimildir á vefnum um afstöðu hans til Evrópusambandsins en samkvæmt því sem mér er sagt er hann sömu skoðunar og Ólafur Ingi og Hanna Birna.
Ég spyr mig svo að því hvaða valdamenn innan Sjálfstæðisflokksins gætu verið að beita sér í þessum "hreinsunum" innan flokksins en af því að nafn Illuga Gunnarssonar var nefnt við mig í því samhengi ákvað ég að fá frekari stuðning af vafri á netinu. Eitt af því sem það skilaði mér var þessi sex ára frétt um þáverandi afstöðu þeirra Illuga Gunnarssonar, núverandi menntamálaráðherra og Bjarna Benediktssonar, núverandi fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, í Fréttablaðinu.
"Tveir frammámenn Sjálfstæðisflokksins á þingi, Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, lýsa því yfir í Fréttablaðinu í dag að þeir vilji að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið og að innganga í sambandið verði borin undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu."
Ég verð að viðurkenna að sé flökkusagan rétt er útlit fyrir að hér sé um sérlega klóka aðgerð að ræða. Aðgerð sem auðveldlega getur umbylt öllu á stjórnmálasviðinu með einni landsfundarályktun. Aðgerð sem getur kúvent þeirri niðurstöðu síðustu alþingiskosninga að meirihluti sitjandi þingmanna væri á móti Evrópusambandsaðild. Aðgerð sem getur komið Evrópusambandssinnum aftur til valda á Alþingi í gegn um tvo stóra flokka og einn eða fleiri minni til vara. Stjórnarsáttmáli núverandi ríkisstjórnar hefði ekkert vægi ef þannig færi að þessi leikflétta næði fram að ganga.
Núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, hefur sýnt að hann tekur ályktanir flokksins alvarlega og vinnur eftir þeim ályktunum jafnvel þó skoðun hans sé í andstöðu við ályktun landsfundar. Það vekur sannarlega athygli að ekki er annað að sjá en tengdasonur hans sé þátttakandi í þeirri tiltekt sem hyllir undir í flokknum en þessi grundvöllur liggur að því sem snýr að opinberri afstöðu hans í málaflokknum innan núverandi ríkisstjórnar:
"Gert verður hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og úttekt gerð á stöðu viðræðnanna og þróun mála innan sambandsins. Úttektin verður lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar og kynnt fyrir þjóðinni. Ekki verður haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu."
Það er spurning hvort þau innherjavíg sem eru að eiga sér stað innan flokksins sé skýringin á bak við þann gríðarlega fylgismun sem hefur verið að mælast á fylgi flokksins í Reykjavík annars vegar og öðrum sveitafélögum hins vegar.
Í Reykjavík mælist flokkurinn ekki með nema 25% fylgi samkvæmt síðustu skoðanakönnunum á meðan fylgi hans fer hæst í 62,2% eða í Vestmannaeyjum.
Yfirlestur var í höndum Rakelar Sigurgeirsdóttur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
91% þjóðarinnar hatar ykkur!
1.3.2013 | 00:14
Hverju svara þingmenn?
Hér getur þú séð hvaða þingmenn ætla að virða vilja kjósenda í stjórnarskrármálinu. Þú getur einnig krafið þá um að gefa upp afstöðu sína.
Þjóðin greiddi atkvæði um nýja stjórnarskrá 20. október. Vilji yfirgnæfandi meiri hluta kjósenda var skýr og afdráttarlaus.
(Nafn þitt og netfang er aðeins notað til að senda þingmönnum skilaboð ef þú það velur.)
Hópur sem kallar sig 20. október stendur að vefsíðu þar sem þennan texta er að finna í bláum kassa sem ómögulegt er að komast fram hjá nema samþykkja að vefsíðuhaldarar hafi aðgang að "your basic info og email address".
Því er það að ég fer ekki inn á þessa síðu - ég leyfi ekki aðgang að upplýsingum þó það sé tekið fram að upplýsingar séu aðeins notaðar kjósi ég að senda þingmönnum póst. Ég veit ekkert hvort við það verður staðið. Ég veit ekkert hvaða fólk það er sem stendur að baki vefsíðunni.
Sumir vina minna á Facebook hafa tekið þetta framtak 20. október sér til fyrirmyndar og hvetja vini sína á samskiptamiðlinum til að senda þingmönnum vefpóst. Á síðunni eru svo myndir af þingmönnum ásamt nafni, bloggslóð, vefsíðuslóð, póstfangi og símanúmeri.
Ég velti fyrir mér hvort aðilar sem að vefsíðunni standa, svo og þeir fjölmörgu sem hvetja aðra til að krefja þingmenn svara, kæri sig um að bera ábyrgð á ruddalegum vefpóstum sem síðuhaldara hafa sent á þingmenn að undanförnu. Vefpósti á borð við þennan:
Subject: Við bíðum eftir svari
Svaraðu spurningunni (nafn) um frumvarpið um nýju stjórnarskrána.
Þú sleppur ekki við að svara.
Nógu miklir skaðvaldar eruð þið okkur þjóðinni. 91% okkar hatar ykkur.
Vefpóstur sem sendur er í nafni einhvers sem ekki finnst í Þjóðskrá er nákvæmlega svona.
610 manns voru búnir að fara inn á síðuna síðast þegar ég vissi. Ætli þingmenn séu búnir að fá 610 pósta í gegnum hana. Hve margir þeirra ætli séu eins og þessi?
Í þessu sambandi má velta fyrir sér hvaða meining liggur að baki: Þú sleppur ekki við að svara. Er víst að allir 610 séu tilbúnir að skrifa undir yfirganginn og annað sem gerir tóninn í þessu bréfi svo ógeðfelldan?
p.s. Nöfn þingmanns og sendanda eru tekin út úr vefpóstinum sem vísað er til.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Meðmælendur með framboðslistum.
21.2.2013 | 02:45
Þessi færsla er í beinu framhaldi af síðustu færslu, birt með fyrirvara um skekkjur þar sem ég er enginn stærðfræðingur. Í færslunni geng ég út frá því að um 13 framboð verði að ræða í næstu alþingiskosningum.
Tölur varðandi fjölda á kjörskrá eru miðaðar við kjörskrá þann 20.10.12
Reykjavík norður og suður: 11 þingsæti.
Á framboðslista: 22
Meðmæli með framboðslista að lágmarki: 330
Meðmæli með framboðslista að hámarki: 440
Lágmarksfjöldi meðmælenda með 13 framboðum: 4.290
Hámarksfjöldi meðmælenda með 13 framboðum: 5.720
Reykjavík norður:
Á kjörskrá: 45.307
Prósentuhlutfall - kjörskrá/meðmælendur allra framboðslista: 9,5% - 12,6%
Reykjavík suður:
Á kjörskrá síðustu áramót: 45.073
Prósentuhlutfall - kjörskrá/meðmælendur: 9,5% - 12,7%
Suðurkjördæmi og Norðausturkjördæmi: 10 þingsæti.
Á framboðslista: 20
Meðmæli með framboðslista að lágmarki: 300
Meðmæli með framboðslista að hámarki: 400
Lágmarksfjöldi meðmælanda með 13 framboðum: 3900
Hámarksfjöldi meðmælenda með 13 framboðum: 5200
Suðurkjördæmi:
Á kjörskrá: 33.551
Prósentuhlutfall - kjörskrá/meðmælendur: 11,6% - 15,5%
Norðausturkjördæmi:
Á kjörskrá: 29.028
Prósentuhlutfall - kjörskrá/meðmælendur: 13,4% - 17,9%
Suðvesturkjördæmi: 13 þingsæti.
Á framboðslista: 26
Meðmæli með framboðslista að lágmarki: 390
Meðmæli með framboðslista að hámarki: 520
Lágmarksfjöldi meðmælenda með 13 framboðum: 5070
Hámarksfjöldi meðmælenda með 13 framboðum: 6760
Á kjörskrá síðustu áramót: 62.576
Prósentuhlutfall - kjörskrá/meðmælendur: 8,1 % - 10,8 %
Norðvesturkjördæmi: 8 þingsæti.
Á framboðslista: 16
Meðmæli með framboðslista að lágmarki: 240
Meðmæli með framboðslista að hámarki: 320
Lágmarksfjöldi meðmælenda með 13 framboðum: 3120
Hámarksfjöldi meðmælenda með 13 framboðum: 4160
Á kjörskrá: 21.409
Prósentuhlutfall - kjörskrá/meðmælendur: 14,6% - 19,4%
Samanlagður fjöldi meðmælenda á landsvísu, eitt framboð:
Lágmark - 1.890
Hámark - 2.520
Samanlagður fjöldi meðmælenda á landsvísu, 13 framboð:
Lágmark - 24.570
Hámark - 32.760
Á kjörskrá: 236.944
Samanlagður fjöldi frambjóðenda á landsvísu:
Eitt framboð - 126
13 framboð - 1.638
Eins og sjá má verður álag á almenning á milli kjördæma mismikið. Mér þykir liggja nokkuð ljóst fyrir að fólk í Norðvesturkjördæmi verði orðið ansi þreytt á spurningunni um hvort viðkomandi vilji mæla með framboði.
Þess ber að geta að hver og einn má aðeins mæla með einu framboði og frambjóðendur mega ekki mæla með neinu framboði.
Í ljósi þessara talna er svo gaman að velta því fyrir sér hversu margir sitja í kjördæmaráðum og uppstillingarnefndum fyrir 13 framboð. Eða hversu stórt hlutfall þjóðarinnar situr í stjórnum og ráðum stjórnmálaflokka.
Sé miðað við t.d. 5 manns í kjördæmaráð fyrir hvern flokk er um að ræða 390 manns.
Svona í restina get ég ekki sleppt því að nefna að samkvæmt fundargerð Dögunar er ætlunin að safna 400 meðmælendum í hverju kjördæmi. Það er undarlegt í ljósi þess að það er langt umfram það sem þarf í Norðvesturkjördæmi og að mínu áliti allt of tæpt í Suðvesturkjördæmi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tvær konur og önnur í framboðsfríi.
15.2.2013 | 22:01
Í dag las ég frétt um að fyrirhuguð væri stofnun á enn einum stjórnmálaflokkinum. Með fréttinni voru myndir af fjórum karlmönnum.
Í gær rakst ég á síðu á Facebook og yfirlýsingu á síðunni um að sama dag hafi verið skilað inn umsókn um listabókstaf. Þá voru á síðuna skráðir 39 karlar og 2 konur.
Eftir upplýsingaleit á vefnum tók ég eftirfarandi saman.
Þessir ætla í framboð:
1. Vinstri grænir - V listi
Steingrímur J. Sigfússon, formaður.
http://www.vg.is/folkid/stjorn/
Heimasíða: http://www.vg.is/
2. Samfylkingin - S listi
Árni Páll Árnason, formaður.
http://www.samfylkingin.is/Flokkurinn/Stj%C3%B3rnir_flokksins
Heimasíða: http://www.samfylkingin.is/
3. Framsóknarflokkur - B listi
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður.
http://www.framsokn.is/Folkid/Landsstjorn
Heimasíða: http://www.framsokn.is/
4. Sjálfstæðisflokkur - D listi
Bjarni Benidiktsson, formaður.
http://www.xd.is/folkid/midstjorn-og-flokksrad/
Heimasíða: http://www.xd.is/
5. Dögun - T listi
Flatur strúktúr, enginn skráður formaður eða "formaður".
Heimasíða: http://www.xdogun.is/
- Frjálslyndi flokkurinn - F listi
Sigurjón Þórðarson, formaður.
Heimasíða: http://xf.is/
- Hreyfingin - enginn listabókstafur, var Borgarahreyfingin O listi
Þór Saari, "formaður".
http://www.hreyfingin.is/frettir/281-tingmenn-hreyfingarinnar-spara-altingi-milljonir-i-launakostnae.html
Heimasíða: http://www.hreyfingin.is/
6. Björt framtíð - A listi
Guðmundur Steingrímsson, formaður.
http://www.bjortframtid.is/um-bjarta-framtid/stjorn/
Heimasíða: http://www.bjortframtid.is/
7. Hægri grænir - G listi
Guðmundur Franklin, formaður.
http://www.afram-island.is/flokkurinn/folkid/
(Athyglisvert að það eru 8 meðstjórnendur í flokkstjórn - allt karlmenn.)
Heimasíða: http://www.afram-island.is/
8. Húmanistaflokkurinn - H listi
Júlíus K Valdimarsson.
Methúsalem Þórisson.
http://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/leit/kennitala/6011840529
https://www.facebook.com/pages/H%C3%BAmanistaflokkurinn/200634836628989?sk=info
Uppgefin símanúmer á facebooksíðu eru skráð á Júlíus og Methúsalem.
Heimasíða: http://www.internationalhumanistparty.org/
9. Lýðveldisflokkurinn, ekki kominn með listabókstaf en umsókn í ferli - I eða Z listi
https://www.facebook.com/groups/116816961688220/permalink/493919747311271/
Kristján Snorri Ingólfsson.
Hjörleifur Árnason.
Þórarinn Þórarinsson.
Eyjólfur Vestmann Ingólfsson.
https://www.facebook.com/groups/116816961688220/permalink/324583327578248/
10. Lýðræðisvaktin - ekki kominn með listabókstaf:
Þorvaldur Gylfason.
Lýður Árnason.
Örn Bárður Jónsson.
Pétur Gunnlaugsson.
http://www.dv.is/frettir/2013/2/15/stjornlagaradsmenn-stofna-lydraedisvaktina/
11. Pirata flokkurinn - ekki kominn með listabókstaf.
Birgitta Jónsdóttir.
http://m.mbl.is/frettir/innlent/2012/11/25/birgitta_formadur_pirata/
Heimasíða: http://www.piratar.is/
12. Alþýðufylkingin - ekki kominn með listabókstaf, umsókn í ferli, listabókstafur R.
Stofnandi og í bráðabirgðastjórn, Þorvaldur Þorvaldsson.
http://www.althydufylkingin.blogspot.com/2013/01/alyufylkingin-skir-um-listabokstaf.html
Heimasíða: http://www.althydufylkingin.blogspot.com/
13. Landsbyggðarflokkurinn - ekki kominn með listabókstaf.
Magnús Hávarðarson stofnandi/talsmaður.
http://www.landsbyggdin.is/#about
Heimasíða: http://www.landsbyggdin.is/
8 einstaklingsframboð.
Sturla Jónsson
Benedikt Stefánsson.
Ólafur Ögmundsson.
Ragnar Einarsson.
Arngrímur Pálmason.
Þorgeir Yngvason.
Gústaf Grönvold
Heimild: https://www.facebook.com/groups/rettlaeti/permalink/597413590272156/
Guðbjörn Jónsson.
http://gudbjornj.blog.is/blog/bubbi/
Þessir eru til en hafa ekki sagt af eða á um framboð:
14. Bjartsýnisflokkurinn - E listi
Einar Gunnar Birgisson.
http://ja.is/hradleit/?q=birkimel%208b%2C%20107%20reykjav%C3%ADk
http://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/leit/kennitala/6402120470
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/01/25/bjartsynisflokkurinn_i_ovissu/
Skráð heimilsisfang hjá RSK, Birkimel 8b, Einar Gunnar skráður á sama heimilisfang.
15. Lýðræðishreyfingin - P listi
Ástþór Magnússon.
http://lydveldi.blog.is/blog/lydveldi/image/766638/
Þessi hefur lýst því yfir að flokkurinn ætli ekki í framboð:
16. Samstaða - C listi
Lilja Mósesdóttir, formaður:
http://smugan.is/2013/02/samstada-bydur-ekki-fram/
Heimasíða: http://www.xc.is/
Samantekt:
17 stjórnmálaflokkar.
12 ætla í framboð.
2 hafa sameinast um einn lista (reyndar 3 en nafnaskipti urðu á Borgarahreyfingu og Dögun).
2 hafa hvorki sagt af eða á.
1 hefur lýst því yfir að hann fari ekki í framboð.
8 hafa lýst yfir einstaklingsframboði.
Af skráðum formönnum, talsmönnum, forsvarsmönnum og einstaklingsframboðum eru 30 karlar og 2 konur!
Bloggar | Breytt 16.2.2013 kl. 02:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)